|
Unnarholtskot 3 Litla stórbýlið :) |
|
22.11.2011 04:02sumarið 2011Núna um helgina er ég búin að vera að skoða myndir úr tölvunni minni. Fann þessar myndir sem ég tók í stóðhestagirðingunni í sumar. Þegar þessar myndir voru teknar var Berglind í Efra - Langholti í heimsókn og auðvitað kíktum við út í stóðhestagirðingu. Litlu guttarnir okkar komu með og vildu náttúrulega fara á hestbak. Við sögðum að þeir fengu ekkert að fara á hestbak og fórum svo að spjalla um hrossin....... þegar við litum við sáum við að stákarnir ætluðu sko ekkert að sætta sig við þetta og voru að reyna að bjarga sér sjálfir. Svona í laumi tók ég myndir af þessu brasi þeirra félaga. Gráa merin heitir Maístjarna og er frá Vigdísi nágrannakonu minni. Maístjörnu þekki ég og vissi ég að hún er ósköp róleg og barnvæn ![]() ![]() Ef þú getur ekki lyft mér Þorsteinn þá skal ég lyfta þér........ ![]() ![]() Það er kannski betra að halda svona...... ![]() Úps þetta gengur illa! ![]() Aron komdu og hjálpaðu okkur! ![]() Loksins! Skrifað af Kristínu 01.11.2011 09:35FolaldasýningÍ gær var hin árlega folaldasýning hjá Hrossaræktafélagi Hrunamanna. Við mættum náttúrulega á staðinn og með sitthvort hestfolaldið að þessu sinni. Ég tók Dug Daggarson og Styrmir Völustein Völuson. Báðir eru þeir undan Jósteini frá Votmúla sem dvaldi hérna hjá okkur síðasta sumar. Ég verð að viðurkenna að mér fannst þeir tveir hafa tapað töluvert af glæsileika sínum með haustinu en hann kemur vonandi aftur næsta vor :) Dugur fékk fína umsögn byggingalega en það vantaði aðeins upp á það að hann sýndi rými á gangi. Enda strssaður greyið þegar búið var að teyma mömmuna í burtu. Völusteinn komst hinsvegar í úrslit og endaði í 2. sæti. ![]() Völusteinn vakti mikla athygli hér í sumar. Kom það nokkru sinnum fyrir í sumar að fólk sem kom hingað til að kíkja í graðhestagirðinguna gleymdi bara alveg að skoða Gneista því það var svo upptekið af að skoða Völustein :) Völusteinn er afar vel ættaður og held ég það sé best að láta þær fylgja hér að neðan: M: Vala frá Arnarhóli MF: Hervar frá Sauðárkróki (8,27) MM: Fluga frá Arnarhóli (8,23) F: Jósteinn frá Votmúla (7,95) FF: Álfasteini frá Selfossi (8,54) FM: Rut frá Kirkjubæ (8,22). Jósteinn var sýndur í vor og fékk einkunina 7,95 en hann á víst mikið inni og kemur væntanlega í dóm aftur næsta sumar. Greyið lenti í leiðinda slysi eftir hann var sýndur á Mið-fossum og hefur því þurft að vera í fríi vegna meiðsla en vonandi kemur hann sterkur inn næsta sumar :) Völu keyptum við af Freyju Hilmars fyrir nokkrum árum en þá var hún með fyli. Það fyl var hryssa og er alveg fantagóð, mikið efni. Hlaut hún nafnið Freyja :) Vala hefur gefið okkur mjög efnileg trippi og þau eru alveg ákaflega góð í umgengni. Róleg og yfirveguð. Virkilega auðveld í allri meðhöndlum ásamt því að sýna gott ganglag engir brokkstampar þar á ferð :) ![]() ![]() Æ, varð að láta þessa fylgja en hún er af pabbanum Jósteini. Jens Einarsson tók þessa mynd fyrir Freyju fyrir nokkru síðan. Skrifað af Kristínu 30.10.2011 17:07HestaferðirÉg var aldrei búin að minnast á hestferðirnar okkar í sumar. Fyrsta hestaferðin var í lok júlí. Byrjuðum við á að ríða að Hjálmstöðum og og gistum þar í tjaldi. Við Styrmir vorum svo heppin að fá að lúlla hjá Steina í Haukholtum en kappinn hafði nýlega keypt sér tjaldvagn og kippti líka með sér garðhúsgögnunum frá Haukholtum. Já hann Steini er sko algjör snillingur ![]() Frá Hjálmsstöðum var ferðinni heitið að Hlöðuvöllum. Við fengum snilldarveður og ferðin gekk mjög vel. Á Hlöðuvöllum gisti allur hópurinn. Morguninn eftir skildum ég, Styrmir og Bjöggi í Skarði við hópinn sem var á leið í Borgarfjörðinn. ![]() ![]() Frá Hlöðuvöllum riðum við að Þingvöllum. Fórum framhjá Kerlingu og riðum niður Goðaskarð þar sem þessi mynd (hér að ofan) var tekin. Við höfðum gjarðir og múla á hrossunum og teymdum ýmist eða rákum. Við gistum á Skógarhólum þar sem er frábær aðstaða. En þar höfum við ekki gist fyrr nema reyndar gisti ég þar þegar ég var c.a.7 ára en þá fór pabbi og ég ríðandi úr Borgarfirði í Tungurnar. Á Skógarhólum hittum við Jónu systir sem slóst þar í hópinn Daginn eftir komu Inga systir, Svandís litla, Magnús litli frændi minn, Kristinn Þór og Þorbjörg mágkona. Systur mínar skiptust á að ríða en dagleiðin var stutt en hægfarin en fórum við frá Þingvöllum að Kringlumýri. Það er rosalega gaman að ríða gegnum þjóðgarðinn á Þingvöllum framhjá eyðibýlunum og reyna að ímynda sér hvernig hafi verið að búa þar áður fyrr. Þegar við riðum þar í gegn var Bjöggi að tala um hve gaman hafi verið að vera búinn að lesa bókina Hraunfólkið sem fjallar um lífið á Þingvöllum áður fyrr. Eftir heimkomuna keypti ég bókina í næstu bæjarferð í Góða hirðinum og sé sko ekki eftir þeirri lesningu. ![]() Gerðar hafa verið miklar umbætur á skálanum í Kringlumýri frá því við fórum þangað síðast. Fínn skáli og gott að dvelja þar. Þaðan er líka einstaklega þægileg leið heim í kot bara mjúkar moldargötur að undanskilnum smá spöl þar sem þarf að fara yfir Brúará. Já þessi ferð var frábærlega vel heppnuð í góðra vina hópi. Pétur mágur kom svo ásamt syni sínum og mínum (Kristni) inn í Kringlumýri og reið Pétur með okkur síðasta daginn. Við fengum frábært veður allan tíman nema kannski að undanskildum síðasta deginum. Þá rigndi mikið á okkur fyrripartinn af deginum. ![]() Pétur að gá til byggða! Skrifað af Kristínu 26.10.2011 03:43Tiltekt![]() Stundum er gott að taka til í stóðinu hjá sér. Við í kotinu ákváðum að best væri að bjóða 3 hross til sölu mjög ódýrt. Óla jörp er ein af þeim. Hún var mánaðartamin í fyrir einu og hálfu ári síðan að mig minnir. Hún var rosalega róleg í tíðinni og mjög róleg og þægileg í umgengni. Hún hefur ekki verið hreyfð síðan þá en ef við seljum hana ekki núna þá verður hún tekin inn fyrir áramót. Einnig erum við til í að selja ódýrt aðra jarpa meri 8 vetra. Merin er þó nokkuð tamin og alveg rosa, rosalega viljug. Þriðja hrossið sem við erum tilbúin að láta ódýrt er folaldið hennar Lest og Jósteins (sjá myndir hér að neðan). Vel ættað folald sem sýnir allan gang. Já þessi hross fást á lítinn pening sérstaklega ef þau fara í einum pakka Skrifað af Kristínu 03.10.2011 16:20Haust![]() Haustið hefur alltaf sinn sjarma og er alltaf jafn gaman að rölta niður í mýri að fylgjast með hrossunum. Þann 30. ágúst eignaðist ég jarpskjótt hestfolald undan Ösp og Jósteini. Sá litli er afar fallega jarpskjóttur. Ég smellti nokkrum myndum af honum í dag en ég er voðalega ánægð með þann stutta, reistur og fallegur foli sem töltir mikið undir sér ![]() Eins og sjá má er enn nóg beit í kotinu en flestar folaldsmerarnar eru núna úti á bakka og hafa það mjög gott. Á þessari mynd eru Vala, Völusteinn, Ösp og Jór...... en ég ákvað að nafnið á litla skjóna yrði Jór. Já Jór litli lofar góðu og er húsfreyjan afar ánægð að eiga einn skjóttan hest Skrifað af Kristínu 16.07.2011 00:45Dögg og Dugur![]() Jæja eftir landsmót fór hann Dugur litli með mömmu sinni í Tungurnar. Ég lánaði Marie vinkonu minni Dögg þetta árið og fórum við með þau mæðgin upp að Torfastöðum. Á Torfastöðum hittir Dögg Glym frá Leiðólfsstöðum sem hét áður Limur frá Leiðólfsstöðum. Glymur fór í flottan dóm í vor og verður gaman að sjá hvað kemur út úr þessarri pörun. Glymur er rauðskjóttur en það kom ekkert annað til greina en að halda Dögg undir skjóttan stóðhest. Þetta er í 5. sinn sem hún fer til stóðhests sem er skjóttur en ekki enn gefið skjótt afkvæmi. Við Marie ætlum ekki að gefast upp á að fá bleikskjótta meri undan Dögg. Það verður gaman að sjá hvort það takist í þetta sinn Dugur er annars mjög myndarlegt folald og var ég afar ánægð að sjá hvað hann hreyfði sig flott þegar ég rak hann og Dögg heim. Hann fer mest á tölti og var dálítið sperrtur þegar ég sótti þau og fór um á tandurhreinu tölti með flottri fótlyftu. Glæsilegur klárinn en frúin á bænum hefur samt ákveðið að hafa hann falan. Enda nóg af hrossum á bænum Skrifað af Kristínu 13.07.2011 22:18Hestar og mennSumarið leikur við kotbúa þessa dagana og alltaf nóg að sýsla í kotinu. Sífellt fleiri merar eru að koma til Gneista og tekur hann því ákaflega vel að bætt sé svona inn á hann. Gestagangur er einnig oft í kotinu en um daginn var hann Magnús Árni systursonur minn í heimsókn. Frændurnir Steini og Magnús brugðu sé á bak og skemmtu sér ákaflega vel. Hlógu nánast allan tímann enda prumpuðu hestarnir mjög mikið og hvað er fyndnara en hestur að prumpa ........ ![]() Við fengum lánaðan rosalega góðan hest fyrir Steina í sumar. Þetta er gamall höfðingi sem er ákaflega traustur og ná þeir kapparnir mjög vel saman. Svona hestar eru algjörir gullmolar fyrir litla krakka en ég held það sé mjög mörgum sem vantar einmitt svona hest. ![]() Skrifað af Kristínu 07.07.2011 14:51Sumar!Já það tók sumarið langan tíma að koma. Nú viðrar ansi vel á okkur og styttast fer í heyskap. Húsbóndinn orðinn ansi spenntur að fara að slá og vonum við að það verði þurrkur í kortunum á næstunni. Mikið var riðið út í júní í kotinu enda fór húsfreyjan þá í sumarfrí og nýtti þá daginn í útreiðar. Já dagarnir eru skemmtilegir þessa dagana og fara í því að reka hross til og frá sumir eru settir í svelti yfir daginn aðrir fá að éta að vild. Oft þarf að sækja stóðið þegar hinir og þessir eru að sækja hestana sína. Allt þetta stúss er ósköp skemmtilegt þá kynnist maður hrossunum betur og finnst mér sérstaklega gaman að fylgjast með trippunum vaxa og dafna. Það er svo gaman að spá í ganglag og byggingu á þessum greyjum og sjá hve ört þau stækka ....... já svona eru sumrin Það allra skemmtilegasta við sumrin er HESTAFERÐ! Lagt verður af stað 20. júlí og eitt er víst að ..... ákaflega verður gaman þá Ég smellti þessari mynd af Glað hennar Önnu Dagbjartar í gær þar sem hann stóð og fylgdist grannt með eiganda sínum sem var að viðra tjaldið sitt ....... og náttúrulega Vörðufellið í baksýn. ![]() Skrifað af Kristínu 28.06.2011 06:24FolöldFolöldin dafna vel hér í kotinu. Ég smellti þessari mynd af Völusteini daginn sem Gneisti kom í stóðhestahólfið. Völusteinn og Vala dvelja hjá Gneista í sumar þannig að við getum fylgst með þeim litla. Þegar dýralæknirinn kom um daginn að taka hildarnar úr Lest lét ég hann kíkja inn í Ösp til að sjá hvort eitthvað væri þar inni. Ösp var sónuð tvisvar sinnum geld síðasta sumar en var í girðingunni hjá Jósteini fram í október. Rétt áður en Freyja kom og sótti Jóstein sá ég hann fara upp á Ösp og það hefur greinilega tekist í það skipti Ösp er eina hryssan sem á eftir að kasta. Gáta hefur greinilega látið fylinu í vetur en hún var sónuð með fyli í fyrra og átti að kasta um miðjan júní. Við vorum búin að lána hana þannig að við áttum ekki von á folaldinu úr henni..... já þetta var ansi leiðinlegt en svona er nú hestamennskan ![]() Skrifað af Kristínu 21.06.2011 18:36Gneisti mættur!Þá er Gneisti mættur í kotið. Ég smellti nokkrum myndum af kappanum þegar hann mætti í kotið. Núna eru 11 merar hjá honum en þó nokkrar eiga eftir að bætast við. Það er mikil ró yfir honum og skvísunum hans og lofar þetta allt mjög góðu Set hér inn nokkrar myndir sem ég tók en þessi efsta finnst mér nokkuð sérstök...... eins og Gneisti sé í þrívídd :) ![]() ![]() ![]() Skrifað af Kristínu 18.06.2011 16:30Gneisti frá LynghólDagurinn í dag fer í að undibúa komu Gneista. Gneisti frá Lynghól ætlar að vera hérna í sumar og sinna merum. Kotbúar höfðu rætt það að vera með 1.v graðhest í sumar en........... síðan kom Gneisti til sögunnar og leist okkur svo svakalega vel á ættir hans að við ákváðum að þetta væri fínn kostur. Gneisti er undan Krák frá Blesastöðum og Leistu frá Lynghól. Leista stóð efst á flokki 4.v á landsmótinu 2006 með einkunina 8,34 þar af 8 fyrir byggingu og 8,57 fyrir hæfileika......... ansi gott af 4.v trippi. Gneisti er því af miklum ættum langt aftur. Leista móðir hans er undan Hróð frá Refstöðum og Rispu frá Eystri-Hól. Hróð þarf nú ekki að kynna en Rispa hlaut einkunina 8,26 á landsmótinu 2000 og þar af 9,5 fyrir tölt. Já já þetta skýrir kannski áhuga okkar á að fá hann ![]() ![]() Skrifað af Kristínu 17.06.2011 04:32VölusteinnJá það þarf víst að gefa folöldunum nöfn. Þessi litli gaur (hægra megin á myndinni) höfum við nefnt Völustein. Völusteinn er undan Völu og Jósteini og er því nafngiftin ekki alveg út í bláinn. Völusteinn er afar gæfur og áhugasamur um manninn eins og öll systkini hans. Litlu guttarnir ræddu málin í gær og fór vel á með þeim ![]() ![]() Skrifað af Kristínu 17.06.2011 02:58Jarpur hesturÞað er alltaf svo gaman að fylgjast með hryssunum kasta. Sjaldnast verður maður vitni að því en ég og Steini litli sáum í gærkvöldi að hryssan Lest var farin að hegða sér undarlega. Við drifum okkur út með myndavélina og lögðumst í grasið í dálítilli fjarlægð frá Lest. Ekki gekk þetta nógu vel hjá greyið merinni og stóð hún upp og gekk til okkar Steina. Síðan lagðist hún aftur rétt hjá okkur. ![]() ![]() Nokkru seinna stóð Lest aftur upp og lagðist alveg upp við okkur Steina. Hún var greinilega að biðja okkur um hjálp. Styrmir kom þá og drógum við folaldið út. Þetta var jarpur hestur sem kom þarna í heiminn og var sá litli með frekar stórt höfuð sem gerði þetta líklega dálítið erfitt fyrir greyið merina. ![]() ![]() Lest var greinilega mjög þreytt eftir átökin. Því miður fóru hildarnar ekki að sjálfu sér og kom dýralæknirinn í dag og hreinsaði þær burt. Skrifað af Kristínu 11.06.2011 00:11ÓtitlaðÝmislegt hefur gerst í kotinu síðan ég bloggaði síðast. Freyja okkar fór t.d. í Borgarfjörðinn til Bjössa í Hrepp í smá trimm. Ætlunin var líka að láta hann meta hvort hún ætti erindi í kynbótadóm þetta vorið. Bjössa leist prýðilega á en fannst vanta dálítið upp á andlegan þroska í merinni síðan er að opnast fyrir skeiðið. Mat hann svo að kannski myndi síðsumarssýning ganga upp. Ætlunin var því að við myndum ríða henni næstu mánuðina. Við brunuðum því heim með merina og skelltum henni inn í stíu hjá Hrappi, en þau voru stundum saman í stíu í vetur. Um morguninn þegar ég fór að gefa var hræðilegt að sjá greyið Freyju en Hrappur var gjörsamlega búinn að éta af henni bakið. Freyja hefur því ekki verið brúkuð neitt fyrr en hún var járnuð upp núna um daginn. Styrmir er tók góðan spett á henni og kom heim alveg í skýjunum. Enda merin flink og flott ![]() ![]() ![]() Skrifað af Kristínu 10.06.2011 18:04VölusonurVala hans Styrmis kastaði alveg gullfallegu hestfolaldi. Ekki spillir liturinn fyrir en guttinn er ljósaskjóttur. Við erum sammála um það að hann sé fallegasta folaldið sem hefur komið að hinum ólöstuðum. Hann er háfættur og með svaka flottan háls. Sá litli er mjög gæfur en það er sameiginlegt einkenni afkvæma Völu að þau eru öll svo gæf og yfirveguð. Mjög skemmtileg í umgengni öll sömul ![]() Skrifað af Kristínu
Flettingar í dag: 9 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 23 Gestir í gær: 12 Samtals flettingar: 45096 Samtals gestir: 13506 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 16:52:05 |
Eldra efni Tenglar |